Fjallað verður um ævi og starf nóbelsskáldsins Halldórs Laxness og gildi hans í íslenskri menningarsögu. Lögð verður áhersla á að nemendur kynnist verkum hans sem best, svo sem skáldsögum, smásögum, ljóðum, leikritum og greinum. Staða Halldórs í íslenskri bókmenntasögu 20. aldar verður skoðuð og fjallað um áhrif hans á bókmenntir þessa tíma og mótun sögunnar á hann. Nemendum verða kynntir helstu straumar og stefnur í þjóðfélags- og menningarmálum á þessum tíma. Unnið verður að margvíslegum verkefnum og hugtök og aðferðir við textarýni rifjuð upp og þjálfuð.
Einnig verður stuðst við margs konar fræðsluefni úr fjölmiðlum og netheimum ásamt kvikmyndum sem tengjast Halldóri og verkum hans. Farið verður að Gljúfrasteini, húsi skáldsins. Lögð verður áhersla á að efla læsi nemenda á fjölbreytta texta og þjálfa þá í ritun. Þá verður einnig kveðið ríkt á um sjálfstæði nemenda í vinnubrögðum og þátttöku þeirra í umræðum.
ÍSLE2BM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ævi og starfi nóbelsskáldsins Halldórs Laxness
helstu verkum Halldórs, inntaki þeirra, samtíma þeirra og erindi við nútímann
helstu þáttum íslenskrar bókmenntasögu 20. aldar
helstu straumum og stefnum í þjóðfélags- og menningarmálum bæði hérlendis og erlendis á 20. öld
bókmenntalegu, sögulegu, félagslegu, menningarlegu og pólitísku gildi verka Halldórs
hugtökum og aðferðum við textarýni
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá lestrarreynslu sína á málefnalegan hátt, munnlega og skriflega
beita bókmenntalegum og stílfræðilegum hugtökum til skilnings á þeim bókmenntaverkum sem hann les
greina, túlka og beita gagnrýninni hugsun við lestur og textarýni helstu verka Halldórs Laxness
taka þátt í umræðum um ævi og verk Halldórs
beita tungumálinu á skýran, árangursríkan og blæbrigðaríkan hátt við umfjöllun bókmennta og annarra menningartengdra þátta
miðla þekkingu sinni með kynningum, ritgerðum eða öðrum tjáningarformum á greinargóðan hátt
afla sér heimilda og upplýsinga úr netheimum eða annar staðar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tjá sig, ritrýna og fjalla um ævi og verk Halldórs Laxness í orði og rituðum texta á árangursríkan og viðeigandi hátt við mismunandi aðstæður
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
nýta sér heimildir og aðrar upplýsingar við greiningu og kynningu bókmennta
vinna með heimildir á viðeigandi og ábyrgan hátt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.