Í þessum byrjunaráfanga er nemendum er gerð grein fyrir tilgangi bókhalds og þeim kynnt helstu lög um bókhald og virðisaukaskatt. Nemendum er veitt innsýn í notkun flestra reikninga sem telja má til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi. Fjallað er um bókhaldshringrásina og helstu reglur tvíhliða bókhalds. Fjallað er um grunnhugtökin eignir, skuldir, gjöld og tekjur. Lögð er áhersla á að nemendur verði færir um að annast almennar færslur í dagbók og geti gert lagfæringar á bókhaldinu með hliðsjón af einföldum athugasemdum sem varðar t.d. afskriftir, birgðatalningu, fyrirfram og ógreiddan kostnað og uppgjör virðisaukaskatts. Nemendur eiga einnig að geta sett upp rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils.
Nemandi skal hafa lokið 1.þrepi í stærðfræði
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grundvallarhugtökum tvíhliða bókhalds; debet, kredit, eignum, skuldum, gjöldum og tekjum
bókhaldshringrásinni í tvíhliða bókhaldi
helstu lögum um bókhald og virðisaukaskatt
helstu reikningum sem teljast til grunnreikninga í fjárhagsbókhaldi
fylgiskjölum, dagbók og reikningsjöfnuði
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
færa einfaldar dagbókarfærslur og stilla upp prófjöfnuði
færa niðurstöður dagbókar í reikningsjöfnuð
gera upp einföld viðskipti fyrir ákveðið tímabil
reikna kostnaðarverð seldra vara, vexti, afskriftir eigna, virðisaukaskatt, toll og virðisaukaskatt af innflutningi, gengismun, söluhagnað (tap) af seldum eignum og gera leiðréttingarfærslur og gera upp virðisaukaskatt
setja upp einfaldan efnahags- og rekstrarreikning
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
hefja bókhald með hliðsjón af fyrirliggjandi efnahagsreikningi eða stofnun fyrirtækis
gera lagfæringar á bókhaldi með með hliðsjón af einföldum athugasemdum, svo sem varðandi afskriftir, birgðatalningu og fyrirfram og ógreiddum kostnaði eða tekjum
setja upp einfaldan rekstrar- og efnahagsreikning í lok reikningstímabils að teknu tilliti til athugasemda og lokafærslna
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.