Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444316471.74

    Tölvubókhald
    BÓKF2TÖ05
    17
    bókfærsla
    Tölvubókhald
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Gert er ráð fyrir að nemendur sem hefja nám í þessum áfanga hafi fullt vald á bókhaldshringrásinni, geti hafið bókhald, skráð færslur og lokað bókhaldi samkvæmt reglukerfi tvíhliða bókhalds. Þessi kunnátta er dýpkuð og tölvutæknin notuð til þess að færa bókhald eftir fylgiskjölum. Farið er yfir þær kröfur sem gerðar eru til tölvubókhaldskerfa og varðveislu gagna sem notuð eru við slíkt bókhald. Áhersla er lögð á að nemendur öðlist skilning á hvernig fjárhagsbókhald sækir upplýsingar í birgðabókhald, viðskiptamannabókhald, sölubókhald og launabókhald. Kynntir eru möguleikar á ýtarlegri skýrslugerð ásamt túlkun og greiningu upplýsinga. Nemendum er kynnt mikilvægi upplýsingakerfa fyrir stjórnendur í nútíma viðskiptaumhverfi þar sem nákvæmar upplýsingar í rauntíma nýtast þeim til skilvirkrar ákvarðanatöku.
    BÓKF2DR05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • umhverfi tölvubókhalds
    • helstu vinnureglum tölvubókhalds
    • uppbyggingu tölvubókhaldskerfis og bókhaldslykilsins og skilji hvernig mismunandi undirkerfi vinna saman við heildarkerfið
    • færslu gagna úr bókhaldskerfi yfir í önnur forrit svo sem töflureikni, ritvinnslu o.fl. og þeim möguleikum sem í þessu felast
    • notkunarmöguleikum bókhaldskerfis til markvissar upplýsingaöflunar og skýrslugerðar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • færa tölvubókhald, bakfærslur og almennum vinnureglum
    • meðhöndla og merkja fylgiskjöl
    • stofna og eyða t.d. vörunúmerum, birgjum og viðskiptamönnum
    • útbúa launaseðla og skilaskýrslur
    • gera upp fyrir tiltekið reikningstímabil
    • setja upp bókhaldslykil
    • færa gögn úr bókhaldskerfi yfir í önnur forrit svo sem töflureikni, ritvinnslu o.fl.
    • vinna úr þeim gögnum sem flutt eru úr bókhaldskerfi til frekari útreikninga og framsetningar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • hefja vinnu við færslu bókhalds í bókhaldskerfi
    • skrá, bóka og bakfæra fylgiskjöl í mismunandi kerfum
    • flokka, merkja og varðveita fylgiskjöl bókhalds
    • loka bókhaldsári minni rekstrar og sett upp ársreikning
    • nýta upplýsingakerfi til markvissrar upplýsingaöflunar og skýrslugerðar
    • túlka upplýsingar úr tölvubókhaldi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.