Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444318480.94

    Fjármálalæsi og heimilisbókhald
    FJÁR2FH05
    1
    fjármálalæsi
    Fjármálalæsi og heimilisbókhald
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Farið er yfir helstu grunnþætti í fjármálum sem snerta alla einstaklinga í íslensku þjóðfélagi. Markmiðið er að gera nemendur kleift að taka upplýstar ákvarðanir í eigin fjármálum sem byggja á staðreyndum, svo að þau verði sjálfbjarga í raunverulegum aðstæðum.
    Hefur lokið 1.þrepi í stærðfræði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu réttindum og skyldum launþega og verktaka
    • almennum sparnaði, lífeyrisréttindum og viðbótarlífeyrissparnaði
    • ýmsum skattgreiðslum og skatttekjum og útgjöldum hins opinbera
    • hvað kostar að vera unglingur í dag, reka bíl og hvað þarf að huga að við kaup á eignum
    • gengi gjaldmiðla, verðbólgu og hvernig verðbólga myndast og er mæld
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skrifa atvinnuumsókn og ferilskrá
    • reikna álagningu, virðisaukaskatt og afslætti á vörum, afborganir, nafnvexti, raunvexti og verðbætur af lánum og gengismun erlendra gjaldmiðla
    • færa heimilisbókhald
    • setja upp launaseðil og gera útreikninga þar að lútandi, svo sem lífeyrissjóð og staðgreiðslu skatta
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta lesið, greint, stjórnað og fjallað um fjárhagslega þætti sem hafa áhrif á efnahagslega velferð einstaklinga
    • setja sér markmið í fjármálum og skoða hvernig tekst að ná þeim
    • afla sér frekari þekkingar um fjármál og geta nýtt sér upplýsingatækni og netið við öflun upplýsinga og lausn verkefna sem tengjast fjármálaviðfangsefnum
    • til að hafa yfirsýn og stjórn á daglegum fjármálum með einfaldri áætlanagerð
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.