Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444484934.13

    Sérhæfður orðaforð
    ENSK2SO05
    100
    enska
    sérhæfður orðaforði
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er áhersla á sérhæfðan orðaforða, fagorðaforða (academic vocabulary), þar sem nemendur vinna með verkefni tengd námsbrautum þeim sem þeir eru á. Þýðingar og/eða útdrættir á fagtextum á félags- eða raungreinasviði sem nemendur velja í samráði við kennara hverju sinni. Lesnar klassískar bókmenntir eftir þekkta enskumælandi höfunda. Munnleg færni þjálfuð enn meir en áður með samtölum og kynningum nemenda á textum og námsefni. Áfanginn á að brúa bilið milli milli B2 og C1 í Evrópsku tungumálamöppunni.
    ENSK2HF05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum viðhorfum og gildum sem móta menningu í enskumælandi löndum
    • orðaforða sem hæfir hæfniviðmiðum þrepsins
    • alhliða færni í málinu bæði munnlega og skriflega
    • helstu hefðum um uppsetningu og skipulag ritaðs máls, einkum uppsetningu ritgerða
    • flóknari textum og skilningi út frá víðara samhengi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja ólík málsnið
    • lesa fjölbreytt textaform og beita þeim lestraraðferðum sem við eiga hverju sinni
    • beita málfari við hæfi við ólíkar aðstæður, bæði í rituðu og töluðu máli
    • tjá sig hnökralaust um málefni sem nemendur hafa kynnt sér og undirbúið
    • skrifa margs konar texta og fylgja helstu rithefðum og reglum um málbeitingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja án vandkvæða megininntak erinda og rökræðna, jafnvel um tiltölulega flókið efni, ef nemandi þekkir til þess
    • lesa á milli línanna og átta sig á dýpri merkingu í texta
    • taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
    • skrifa margs konar texta og fylgja þeim ritunarhefðum sem eiga við í hverju tilviki fyrir sig
    • tileinka sér efni ritaðs texta og hagnýta á mismunandi hátt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.