Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444644301.84

    Grunnhugtök og skilgreiningar
    REKH2GS05
    5
    Rekstrarhagfræði
    Grunnhugtök og skilgreiningar
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum byrjunar áfanga er farið yfir ýmis grunnhugtök hagfræðinnar og helstu skilgreiningar á kostnaði og tekjum fyrirtækja, rekstraráætlanir og framlegðarútreikninga. Stór hluti áfangans felst í stærðfræðilegri greiningu á rekstrarhagfræðilegum úrlausnarefnum. Áhersla er lögð á stærðfræðilega nálgun og notkun línurita til að leysa rekstrarhagfræðileg viðfangsefni, svo sem kostnað, tekjumyndun og jafnvægi í rekstri fyrirtækja.
    Hafi lokið 1.þrepi í stærðfræði. Æskilegt: BÓKF2DR05.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grundvallarhugtökum hagfræðinnar; skorti, val og fórnarkostnaði
    • framboði og eftirspurn og jafnvægi á markaði
    • helstu framleiðsluþáttum
    • helstu kostnaðarhugtökum, tekjum og afkomu fyrirtækja
    • muninum á helstu kostnaðarhugtökum eins og á breytilegum og föstum kostnaði og á beinum og óbeinum kostnaði
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • reikna hráefniskostnað, hráefna- og afurðabirgðir, framleiðslukostnað, kostnaðarverð seldra vara, rekstrarjafnvægi, afkomu og eigið verð afurða
    • gera einfalda greiðslu- og rekstraráætlun ásamt efnahagsreikningi
    • gera framlegðarútreikninga og finna rekstrarjafnvægi
    • gera fjárhagslínurit
    • reikna hagkvæmasta framleiðslumagn við fullkomna samkeppni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • setja upp einfalda fjárhagsáætlun
    • skilja hvernig verðmæti myndast innan fyrirtækja og hvernig þeim er ráðstafað
    • túlka og meta ársreikninga fyrirtækja með kennitölum
    • lesa og túlka línurit og geta unnið gögn úr þeim
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.