Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444645257.35

    Breskar og bandarískar bókmenntir
    ENSK3BK05
    123
    enska
    bókmenntir og menning
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Unnið er út frá ákveðnum þemum t.d. stríði eða kúgun, kynþáttafordómum, misrétti, yfirstéttarhegðun , mismunun eftir þjóðfélagsstétt, kvennabókmenntum ásamt fleiru sem áhugavert þykir. Mest er um að ræða kvikmyndaáhorf og lestur klassískra bóka. Áfanginn byggir mest á bókmenntum 19. og 20.aldar, hvort heldur er um kvikmyndir eða bókalestur að ræða, jafnvel smásögur. Við val á efni er jafnvel stuðst við þær bókmenntir sem Bretar og Bandaríkjamenn skylda sína nemendur til að lesa í skóla. Nemendur fá þannig innsýn inn í heimsbókmenntir, eða amk. bókmenntir stórra enskumælandi málsvæða. Vinnubækur, kjörbækur, kynningar og umræður ásamt hefðbundnum ritgerðum. Hópvinna og einstaklingsvinna. Samfélagsmynd tímabilsins skoðuð í tengslum við efnið. Áfanginn er á stigi C1-2 skv. Evrópsku tungumálamöppunni.
    ENSK3FA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mismun innan menningarsvæða, út frá félagslegum þáttum sem og samfélagi fyrri tíma miðað við daginn í dag
    • menningarlegum mismun milli Bandaríkjanna og Bretlands á 19. og 20.öld
    • enskri tungu og þróun hennar innan ólíkra samfélaga og landa
    • helstu hugtökum í bókmenntafræði
    • ólíkum viðhorfum og samfélagsgildum fyrri alda og hvernig þau hafa breyst í tímans rás
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til fræðslu og ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð í klassískum bókmenntaverkum
    • beita tungumálinu af lipurð og geta notað orðaforða sem er viðeigandi í hvert sinn
    • greina mismunandi málsnið og stíl í rituðu máli, og gera sér grein fyrir undirliggjandi merkingu
    • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í bókmenntatextum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja gagnrýnið mat á texta og listrænt gildi hans
    • átta sig á gagnrýni og túlkun höfunda bóka eða kvikmynda
    • geti flutt vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, dregið fram aðalatriði og rökstutt mál sitt nokkuð nákvæmlega með dæmum og brugðist við fyrirspurnum
    • geti skrifað texta með röksemdafærslu og tilvísunum þar sem rök koma fram með og á móti og þau vegin og metin
    • geta túlkað út frá menningarlegu sjónarhorni gagnrýni á þjóðfélög og umræðu þá sem fer fram í hverju verkefni fyrir sig
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis
    • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.