Farið er yfir grunnhugtök og kenningar í stjórnun s.s stjórnskipulag og fyrirtækjabrag, boðleiðir, stjórnunarkenningar, stjórnunarstíla, hópa og hópavinnu, starfshvata, verkstjórn, valdaframsal og fyrirtækjalýðræði, upplýsingar og upplýsingamiðlun, starfsmannastjórnun, starfsmannastefnu, starfsmannaáætlanir, móttöku nýliða, uppbyggingu viðtala, starfsþjálfun og ýmis stjórntæki kynnt. Þá er farið yfir réttindi og skyldur á vinnumarkaði og stefnumótun. Leitast er við að veita nemendum innsýn í störf stjórnenda og kynna þeim ýmis verkefni sem þeir inna af hendi. Nemendum er kynnt gildi stjórnunar og skipulagningar fyrir einstaklinginn, fyrirtækið og samfélagið. Viðfangsefni áfangans miða meðal annars að því að undirbúa nemendur fyrir þátttöku í félags- og atvinnulífi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þróun stjórnunar sem fræðigreinar
hlutverki stjórnenda
stjórnskipulagi og skipulagsheild fyrirtækja
fyrirtækjamenningu og helstu kenningum um hana
helstu stjórnunarkenningum og stjórnunarstílum
starfshvötum og valdaframsali
gildi hópavinnu í lausn verkefna og mismunandi aðferðum við notkun hópa
boðmiðlun, samskiptarstjórnun og stjórnun upplýsinga
árangursríkri breytingarstjórnun
hlutverki verkstjóra
helstu kenningum um leiðtoga
nýjum straumum og hugmyndum í stjórnunarfræðum
starfsmannastjórnun, starfsmannastefnu og starfsmannaáætlunum
ráðningarferli, starfslýsingum og starfsmötum
kynningu og móttöku nýliða
frammistöðumati og starfsmannasamtölum
stefnumótum, vinnuferli stefnumótunar og aðferðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota aðferðir og verkfæri stjórnunar við lausn ýmissa raunhæfra verkefna
túlka skipurit og lýst mikilvægi skýrra boðleiða í skipulagsheildum
lýsa mismunandi stjórnunarstílum með raunhæfum dæmum
lýsa og greina hvernig starfshvatar virka til betri árangurs í starfi skipulagsheilda og samspili starfshvata og mannlegra þarfa
lýsa kostum og göllum hópvinnu og lýsa forsendum árangursríks hópastarfs
sýna fram á mismunandi virkni tvíhliða- og einhliða samskipta
rökstyðja og sýna fram hvernig hægt er að nota verkfæri og hugmyndir breytingarstjórnunar til betri árangurs við innleiðingu á breytingum
greina mismunandi starfsmannastefnur og gera starfsþróunaráætlun eftir gefnum forsendum
leggja mat á frammistöðu og greina mismunandi viðbrögð í starfsmannasamtölum
kortleggja vinnuferli stefnumótunar
hagnýta sér netið til öflunar stjórnunarlegra upplýsinga
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra mikilvægi stjórnunar fyrir einstakling, fyrirtæki og samfélag
finna lausnar á raunverulegum viðfangsefnum á sviði stjórnunnar
undirbúa viðtal og stjórna samskiptum meðan á viðtali stendur
taka þátt í umræðu um mannauðsstjórnun og stjórnun skipulagsheilda með skilningi og út frá faglegu sjónarmiði
lesa um málefni tengd mannauðsstjórnun og stjórnun skipulagsheilda með skilningi
beita upplýsingatækni við öflun upplýsinga og lausn verkefna
notað ýmis verkfæri stjórnunar til að auðvelda skipulagningu og gera stjórnun árangursríkar
að nemandi geti nýtt sér eigin reynslu af atvinnu og atvinnulífi við lausn verkefna
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.