Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444650877.91

    Bóklegur áfangi
    HLSE1BÁ02
    15
    heilsuefling
    Bóklegur áfangi
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Áfanginn er bóklegur og fer kennslan fram í fyrirlestrum, verkefnavinnu og hópverkefni. Áfanginn er byggður upp á heilsueflingu, þar sem nemendum er hjálpað að efla heilsulæsi sitt, svo þau geti leitað upplýsinga og lesið úr þeim. Nemendur læri um forvarnir, hreyfingu, hreinlæti, næringu og fleiri þætti sem tengast heilsu og umhverfi. Nemendur eru látnir gera ársáætlun fyrir sig eða einhvern annan ,vinna með tölvur og nota upplýsingatæknina sér til aðstoðar.
    HLSE1AH02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuþekkingu í heilsurækt
    • hvernig líkaminn vinnur við álag og í hvíld
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • hvaða áhrif þol-, styktar – og liðleikaþjálfun hefur á líkamann
    • markmiðssetningu
    • forvarnargildi í heilsuræktar
    • heilsulæsi
    • gerð æfingaáætlunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja sig í daglegu lífi
    • skipuleggja sína íþróttaiðkun og heilsurækt þannig að álagið sé rétt
    • meta heilsu sína
    • nota æfingaáætlun
    • velja þá hluti sem hafa góð áhrif á heilsuna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja saman hreyfingu, næringu og forvarnir
    • meta hvaða æfingar henta hverju sinni
    • meta ástand sitt t.d. með því að mæla þol, styrk og liðleika
    • meta hvaða lífsstíll henti
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.