Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444653704.7

    Almenn hreyfing
    HLSE1AH02
    11
    heilsuefling
    Almenn hreyfing
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum er farið yfir alhliða hreyfingu og heilsurækt þar sem nemendur læra mikilvægi upphitunar, þol- , styrktar og liðleikaþjálfun. Í byrjun taka nemendur próf og setja sér markmið fyrir lok áfangans, prófin byggja á þoli og styrk nemandans. Á miðri önn þá taka nemendur aftur próf og vita þá hvort þau eru á réttri leið. Nemendur taka þátt í verklegum æfingum sem þjálfa alla þætti grunnþjálfunar og læra aðferðir til að efla heilsulæsi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi hreyfingar og hvað hægt er að æfa líkamann með fjölbreyttum hætti
    • kynnist helstu þjálfunaræfingum
    • að þol-, styrktar- og liðleikaþjálfun skiptir miklu máli
    • að hægt sé að nota leiki til að byggja um heilsuna
    • markmiðssetningu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • stunda líkams og heilsurækt
    • framkvæma þol-, styrktar- og liðleikaæfingar
    • vinna með öðrum
    • framkvæma æfingar á réttan hátt
    • nýta sér möguleika til heilsuræktar í nánasta umhverfi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • finna út hvaða æfingarálag henti best
    • meta stöðuna sína í þoli, styrk og liðleika
    • stunda æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega getu
    • beita heilsulæsi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.