Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444662532.37

    Stærðfræðigrunnur, fyrri hluti
    STÆR1UA05
    83
    stærðfræði
    a, upprifjun
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum áfanga verður viðfangsefnið meðhöndlað út frá óhefðbundnum leiðum og reynt að tengja það daglegu lífi og hagnýtum viðfangsefnum. Farið verður í grunnaðferðir-og reglur stærðfræðinnar.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • talnameðferð í samlagningu og frádrætti
    • tengslum margföldunar og deilanleika
    • forgangsröð aðgerða
    • almennum brotum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • setja fram svör með viðeigandi nákvæmni
    • forgangsraða aðgerðum og nota sviga
    • vinna með almenn brot (styttingu, lengingu, margföldun og deilingu)
    • vinna sjálfstætt að stærðfræðilegum verkefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta og unnið til baka frá þekktum stærðum
    • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum huga og temji sér jákvætt viðhorf gagnvart faginu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.