Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444662853.92

    Stærðfræðigrunnur, seinni hluti
    STÆR1UB05
    84
    stærðfræði
    b, undirbúningur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í þessum áfanga verður reynt að tengja það daglegu lífi og hagnýtum viðfangsefnum. Markmið áfangans er að auka kunnáttu nemenda í grundvallaratriðum stærðfræðinnar og að nemendur nái sömu kunnáttu og krafist er til grunnskólaprófs
    STÆR1UA05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • tengslum margföldunar og deilanleika
    • forgangsröð aðgerða
    • almennum brotum og tugabrotum
    • undirstöðureglum talna- og bókstafareiknings
    • 1. stigs jöfnum með einni óþekktri stærð
    • jöfnu beinnar línu og hnitakerfi
    • hlutfallareikningi og grunnatriðum í prósentureikningi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita helstu aðgerðum á heilar tölur og nota víxlreglu, tengireglu og dreifireglu í talna- og bókstafareikningi
    • setja fram svör með viðeigandi nákvæmni
    • forgangsraða aðgerðum og nota sviga
    • reikna prósentur og finna hlutföll milli stærða
    • beita bókstafareikningi, liðun og þáttun
    • leysa jöfnur með einni óþekktri stærð
    • vinna með jöfnu beinnar línu
    • vinna sjálfstætt í stærðfræðilegum verkefnum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta og unnið til baka frá þekktum stærðum
    • takast á við stærðfræðileg verkefni með opnum huga og temja sér jákvætt hugarfar gagnvart faginu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.