Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444663106.81

    Badminton
    HLSE1BT02
    12
    heilsuefling
    Badminton
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Farið í grunnatriði leiksins og reglur með það að leiðarljósi að nemendur verði áhugasamir um að stunda íþróttina í framtíðinni. Farið er yfir helstu hugtök íþróttagreinarinnar t.d. Badminton, líkamsstaða, grip, forhönd, bakhönd, uppgjöf, staðsetning, hreyfing, að slá bolta, skellur, háhögg, lauma, netlauma, lyftilauma, þjálfun, leikfræði, leikvöllur, einliðaleikur, tvíliðaleikur, leikreglur. Dómgæsla. Áfanginn er verklegur en að auki vinna nemendur verkefni sem tengist viðfangsefninu.
    HLSE1AH02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • undirstöðuþáttum í badminton
    • reglum í íþróttagreininni
    • helsta búnaði sem notaður er í badminton
    • orðalagi sem tengist íþróttagreininni
    • æfingum í badmintoni og þjálfunaraðferðir eins og þol og styrk
    • mikilvægi hreyfingar í hvaða formi sem er
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja sínar tækniæfingar og æfingu í badminton
    • spila badminton á réttan hátt
    • vinna með öðrum og myndað félagsleg tengsl
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leysa af hendi verkefni sem snúa að skipulagi eigin þjálfunar
    • spila badminton með þeim reglum sem íþróttinni fylgja
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.