Föll, margliðudeiling, markgildi og deildun algengustu falla
Samþykkt af skóla
3
5
Aðalefni áfangans er deildun falla og könnun þeirra, skilgreining á afleiðu, eintækt, átækt og gagntækt fall, andhverft fall, vísisföll og lograföll, markgildi og samfelld föll. Nemendur eru hvattir til að vinna saman að lausn verkefna þegar við á og temja sér góð og öguð vinnubrögð við framsetningu lausna.
STÆR3HV05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
meðhöndlun algengustu falla, s.s. margliðu-, veldis- og rótarfalla
markgildum falla
lausnum lograjafna
deildun falla, s.s. vísis- og lografalla og samsettra falla
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
finna afleiður falla út frá reiknireglum um deildun
nota skilgreiningu á afleiðu til að finna afleiður falla
reikna einföld markgildi og ganga úr skugga um hvort fall sé samfellt
finna útgildispunkta og beygjuskil
nota logra til að leysa jöfnur
finna andhverfu falla
finna jöfnu snertils við feril falls
teikna feril falls
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega og á viðeigandi hátt
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námefni
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.