Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444683682.5

    Heildareikningur og tvinntölur
    STÆR3HT05
    123
    stærðfræði
    2. stigs diffurjöfnur . runur og raðir, hagnýting heildareiknings, samleitnipróf., tvinntölur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Hagnýtur heildareikningur, andhverf hornaföll, skilgreining tvinntalna, reiknireglur sem gilda í mengi þeirra og samsvörun tvinntalna við vigra, og pólform tvinntalna, 1. og 2. stigs deildajöfnur. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð og nemendur hvattir til að vinna saman að lausn verkefna, ræða saman um lausnir og lausnaraðferðir.
    STÆR3HD05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu aðferðum við að leysa ákveðin og óákveðin heildi
    • deildajöfnum, sérlausn og fullnaðaðarlausn
    • tvinntölum og tengslum tvinnfalla og raunfalla
    • hvernig nýta má tvinntölur til að þátta margliður með rauntölustuðlum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita hlutheildun, innsetningu og brotaliðun við lausn heilda
    • breyta tvinntölu af rétthyrndu formi á pólform og öfugt
    • reikna með tvinntölum
    • leysa deildarjöfnur af 1. og 2. stigi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
    • geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.