Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444684011.57

    Heildun og deildarjöfnur
    STÆR3HD05
    122
    stærðfræði
    deildajöfnun, heildun, raðir, runur
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Aðalefni áfangans er einfaldar deildarjöfnur, flatarmál og rúmmál reiknað með heildun, stofnföll, óákveðin heildi, tengsl heildunar og deildunar, hlutheildun, heildun margliða, vísisfalla og hornafalla, innsetningaraðferðin, runur, raðir og þrepunarsannanir. Nemendur eru hvattir til að vinna saman að lausn verkefna þegar við á og temja sér öguð og góð vinnubrögð.
    STÆR3MD05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • heildun helstu falla
    • tengslum heildunar og deildunar
    • tengslum heildunar við flatarmál og rúmmál
    • deildarjöfnum
    • endanlegum og óendanlegum runum og röðum
    • þrepasönnunum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • finna ákveðin og óákveðin heildi helstu falla
    • heilda með hlutheildun
    • nota innsetningaraðferðina
    • finna lausnir línulegra fyrsta stigs deildarjafna
    • hagnýta deildarjöfnur til þess að gera einsföld líkön af raunverulegum aðstæðum
    • vinna með endanlegar og óendanlegar runur og raðir
    • setja upp og túlka þrepasannanir
    • lesa í stærðfræðilega framsetningu námsefnisins og túlka í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leysa viðfangsefni í heildunar og deildunarreikningi
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s.s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta. Unnið verður til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu og stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • geta fylgt og skilið röskemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.