Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444685159.87

    Strjál stærðfræði
    STÆR3SS05
    119
    stærðfræði
    strjál stærðfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Efnissvið áfangans eru fylkjareikningar, Gauss-Jordan, andhverf fylki, mengjafræði, rökfræði, talningarfræði, reiknirit og talnafræði. Náttúrlegar tölur eru sameiginlegt viðfangsefni þessara sviða. Helstu efnisatriði eru: Fylki, mengi, vensl, varpanir og helstu hugtök varðandi þessi atriði, talningarfræði, rökreglur, mótdæmi, rakning, þrepun, reiknirit, deilanleiki talna og frumtölur, sætiskerfi með öðrum grunntölum en 10, leifaflokkar og aðgerðir með leifaflokkum
    STÆR3MD05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu kerfum og hugtökum fylkjareiknings
    • reglu Gauss-Jordan
    • undirstöðuhugtökum talnafræðinnar
    • gerð og notkun reiknirita
    • aðferðum úr talningarfræði
    • pascal þríhyrningnum og reglum Pascals sem tengjast talningum
    • helstu mengjahugtökum og mengjareikningi
    • helstu hugtökum og aðferðum stærðfræðilegrar rökfræði
    • sætiskerfi með öðrum grunntölum en tíu
    • helstu reglum og aðgerðum leifaflokkunar
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota aðferðir fylkjareiknings m.a. til að leysa jöfnuhneppi og finna andhverfur
    • finna minnsta samfeldi, bæði með frumþáttun og reikniriti Evklíðs
    • umrita tölur í önnur talnakerfi en tugakerfið
    • nota litlu reglu Fermats, Euler fallið, Euler-regluna og Kínversku leifaregluna í leifareikningi
    • nota Pascal þríhyrninginn og reglu Pascals
    • reikna fjölda umraðana og samantekta
    • notfæra sér rökyrðingar og sanntöflur
    • nota rakningar og þrepun til að sannreyna ályktanir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt í máli og riti
    • nýta stærðfræðileg líkön til að fást við aðrar fræðigreinar
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu stærðfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • skilja að það sé ekki sjálfsagt að verkefni hafi lausnir, hvorki einföld jafna né stór viðfangsefni
    • beita gagnrýninni og skapandi hugsun við lausn verkefna og þrauta
    • geta fylgt og skilið röksemdafærslur í mæltu máli og riti
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.