Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444728083.4

    Þrívíð rúmfræði
    STÆR3RÚ05
    118
    stærðfræði
    rúmfræði, þrívídd
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í þessum áfangar er fjallað um skilgeiningar og reiknireglur fyrir vigra og sléttur á hnitaformi, vigrar í þrívídd og hnit þeirra. Hornafræði í þrívíðu rúmi. Jöfnur keilusniða og speglunareiginleikar þeirra. Nemendur þurfa að geta leitt út valdar sannanir og lagt er upp úr því nemendur beiti skipulögðum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum.
    STÆR3HV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skilgreiningum og reiknireglum vigra í sléttu og rúmi
    • stikaformi línu í tvívíðu og þrívíðu rúmi
    • krossfeldi
    • fjarlægð milli punkta og línu, milli punkts og sléttu, milli samsíðna sléttna, milli mislægra lína
    • mismunandi keilusniðum og speglunareiginleikum þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita vigurreikningi í sléttum fleti
    • finna stikaform lína og slétta
    • finna innfeldi og krossfeldi vigra
    • finna horn milli vigra og sléttna í þrívíðu rúmi
    • notað reglur í vigrarreikningi án þess að hnit séu gefin upp
    • eikna upp mismunandi keilusnið með GeoGebru
    • leiða út valdar sannanir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilegan og á viðeigandi hátt
    • beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum
    • geta fylgt eftir og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.