Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444735814.51

    Útræn öfl
    JARÐ2ÚÖ05
    45
    jarðfræði
    Útræn öfl
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áfanginn er grunnáfangi fyrir raunvísindabraut. Áhersla er lögð á útræn öfl og mótun landslags á Íslandi af þeirra völdum. Fjallað er um kortagerð, innri gerð jarðar, flekakenninguna og jarðhita. Útrænum öflum gerð góð skil. Ýmsum þáttum í staðfræði Íslands gerð skil.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu atriðum korta og kortagerðar
    • lengdar- og breiddarbaugum og áttum
    • innri gerð jarðar, landreki, flekamörkum, möttulstrókum og sérstöðu Íslands
    • grunnvatni, neysluvatni og heitu vatni
    • hvar jarðhita er að finna á Íslandi og helstu einkennum hans
    • þeim útrænu öflum sem eru að verki á Íslandi og ummerkjum þeirra
    • þeim öflum sem hafa mótað og myndað nærumhverfi skólans
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa kort, bæði staðfræði- og þemakort
    • finna raunverulegar vegalengdir út frá mælikvarða korta
    • teikna þversnið út frá hæðarlínum
    • finna fullnaðarstaðsetningu fyrirbæra
    • greina ummerki útrænna afla við landmótun
    • staðsetja helstu náttúrufyrirbæri á Íslandi og tengja náttúrufarslega þætti við staðsetninguna
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • tengja undirstöðuþætti jarðfræðinnar við umhverfi sitt og fjallað á rökrænan hátt um mikilvægi og notagildi í daglegu lífi
    • lesa jarðfræðitexta og skilja fréttir af jarðfræðilegum fyrirbrigðum
    • lesa á kort og nýtt sér þau
    • skilja mikilvægi þess að sýna umhverfi sínu og náttúru virðingu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.