Í áfanganum er fjallað um þróun og eðli ólíkrar miðlunar, t.d. ljósvakamiðla, prentmiðla og netið (ekki síst samfélagsmiðla). Velt er upp spurningum um vald og margvísleg áhrif fjölmiðla á stöðu einstaklinga og samfélaga. Kannað er hvort eignarhald og forræði getur haft áhrif á umfjöllun og fréttamat fjölmiðla. Greint er á milli upplýsinga- og afþreyingarhlutverks fjölmiðla og fjölbreytilegt efni skoðað í því samhengi. Lögð er áhersla á virkni nemenda þar sem nemendur greina og meta fjölmiðla. Auk þess sem nemendur fá grunnþjálfum í að skapa eigið fjölmiðlaefni.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu og þróun ólíkra fjölmiðla
starfi og vinnuaðferðum fjölmiðlafólks
mögulegum áhrifum fjölmiðla á viðmið og gildi
lögum og siðareglum um fjölmiðla
úrvinnslu fréttaefnis
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla og vinna úr upplýsingum um fjölmiðla
meta hlutlægni og hlutdrægni í fjölmiðlum
tengja fræðilega umræðu um fjölmiðla við samfélagið
vega og meta ólíkar hugmyndir og kenningar um inntak og áhrif fjölmiðla
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja gagnrýnið mat á fjölmiðlaefni
skapa sitt eigið fjölmiðlaefni
taka þátt í umræðum um fjölmiðlaheiminn með því að beita rökstuðningi
meta eigin frammistöðu og annarra með gagnrýnum hætti
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.