Áfanginn er inngangsáfangi um sögu heimspekinnar. Farið er vítt og breytt yfir sögu heimspekinnar frá Þales til nútímans. Nokkrar af helstu kenningu heimspekinnar verða reifaðar og rannsakaðar
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu og þróun heimspekinnar í stórum dráttum
nokkrum af mikilvægustu heimspekingum sögunnar og kenningum þeirra
helstu viðfangsefnum heimspekinnar
mismunandi aðferðum heimspekinnar og ólíkum nálgunum hugsuða á viðfangsefni sín
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa heimspekilegan texta
tileinka sér aðferðafræði heimspekinnar
beita gagnrýnni hugsun á viðfangsefni heimspekinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera saman ólíkar heimspekikenningar
rýna í texta og myndir á gagnrýninn hátt
vinna í samstarfi með ólíkar heimildir og komist að sameiginlegri niðurstöðu
beita vinnubrögðum heimspekinnar til þess að vinna úr heimildum og setja fram á skilmerkilegan hátt í máli og myndum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.