Í þessum áfanga er haldið áfram að vinna með grunnatriði ólífrænnar efnafræði og einnig byggt ofan á fyrri þekkingu. Farið verður í: Efnahvörf í lausnum, almenna eiginleikar lausna, rafvaka, fellingar-, sýru/basa- og oxunar/afoxunarhvörf, styrk lausna og hlutfallaútreikninga lausna og efnagreiningu. Fyrsta lögmál varmafræðinnar, innri orku, inn- og útvermin ferli, hvarfavarma og myndunarvarma. Lotubundna eiginleika frumefna, virka kjarnhleðslu, atómradíus, jónunarorku, rafeindafíkn, málma, málmleysingja og hálfmálma. Eiginleika virkra málma og valinna málmleysingja. Efnatengi, jóna- og samgild tengi, Lewistáknun, skautun efnatengja og rafdrægni, átturegluna og undantekningar. Lögun sameinda, VSEPR líkanið og skautun sameinda, ( skörun svigrúma )
EFNA2AM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim hugtökum, lögmálum og reglum sem áhersla er lögð á í áfanganum
eiginleikum lausna
fellingar- sýru/basa- og oxunar/afoxunarhvörfum
styrk lausna og hlutfallaútreikningum lausna
orkuhugtakinu, hvarfavarma efnahvarfa, inn- og útvermum efnahvörfum og myndunarvarma
lotubundna eiginleikum frumefna og einkennum frumefna eftir staðsetningu þeirra í lotukerfinu
flokkun efnasambanda. Eðli jóna- og samgildra tengja
lewistáknun og Lewis byggingu efnasambanda og skautun efnatengja
lögun sameinda og VSEPR líkaninu
vinnubrögðum við tilraunir og framsetningu niðurstaðna
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
þekkja mismunandi gerðir efnahvarfa og segja til um myndefni fellingar- sýru/basa- og oxunar/afoxunarhvarfa
reikna mólstyrk og útreikninga tengda honum
reikna: innri orkubreytingu, hvarfavarmabreytingar efnahvarfa og myndunarvarma.
meta breytingar á virkri kjarnhleðslu, atómradíus, jónunarorku og rafeindafíkn eftir stöðu efna í lotukerfinu og áhrif þessara þátta á eiginleika frumefna
greina á milli jónatengja- samgildra- og skautaðra samgildra tengja
teikna Lewisbyggingu sameinda
nota VSEPR líkan til að finna lögun sameinda
meta hvort sameindir séu skautaðar
framkvæma einfaldar tilraunir og setja fram niðurstöður þeirra á skýran hátt í skýrslu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
útskýra mismunandi efnahvörf og efnajöfnur
nota gögn eins og lotukerfi og varmafræðilegar töflur til upplýsinga
leysa af hendi útreikninga hvað varðar styrk lausna og orku í efnahvörfum
vinna sjálfstætt og í hóp við lausn og úrvinnslu gagna
geta rökstutt og dregið ályktanir út frá þekkingaratriðum áfangans
tengja í auknu mæli efnafræði við daglegt líf, umhverfi og við aðrar raungreinar
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.