Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444830654.95

    Lífræn og lífefnafræði
    EFNA3LL05
    50
    efnafræði
    Lífræn- og lífefnafræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Þessi áfangi fjallar um grunnatriði í lífrænni efnafræði og lífefnafræði. Farið er í helstu þætti hvers flokks lífrænna efna svo sem helstu eiginleika, nafnakerfi, og helstu efnahvörf. Í lífefnafræðihluta áfangans er farið yfir þrjá flokka lífefna, prótein, fitur og kolvetni, Þá eru eiginleikar þeirra skoðaðir og farið yfir nafnakerfi þeirra og myndir. Lagt er upp úr sjálfstæðum vinnubrögðum í verkefnum og verklegum æfingum.
    EFNA2VV05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • frumefninu kolefni, tengjum þess og eiginleikum
    • virkum hópum og nafnakerfi þeirra
    • helstu eiginleikum virkra hópa
    • helstu efnahvörfum lífrænna efna
    • próteinum, fitum, kolvetnum og helstu myndum þeirra og eiginleikum
    • fjölliðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja virka hópa á kolefnakeðjur og geta gefið keðjunum nafn
    • vita hvað ísómerur eru og geta teiknað byggingaformúlur ólíkra ísómera
    • skrifa efnaformúlur fyrir helstu efnahvörf lífrænna efna
    • beita reglu Markovnikovs
    • finna hendnimiðjur í sameindum og vinna með hugtakið hendni
    • teikna helstu lífefni svo sem hringmyndir glúkósa, fitusýrur og amínósýrur
    • setja niðurstöður verklegra æfinga upp í skýrslu
    • setja niðurstöður upp í gröf og töflur og setja fram skýringar á þeim
    • vinna verklega æfingu á sjálfstæðan hátt, og tengja efni hennar við fræði
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • takast á við frekara nám í efnafræði og tengdum greinum á háskólastigi
    • standa undir auknum kröfum um sjálfstæði í vinnubrögðum og ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nýta sér flókinn texta og gögn á markvissan hátt
    • tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
    • tengja efnafræðina við daglegt líf, umhverfi og aðrar náttúrufræðigreinar og sjá notagildi hennar
    • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.