Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444834967.42

    Rafefnafræði, sýrur og basar
    EFNA3RS05
    49
    efnafræði
    Rafefnafræði, sýrur og basar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Þessi áfangi fjallar um sýrur og basa, leysnimargfeldi og varmafræði og þá lykilþætti sem tengjast þeim fræðum. Þá er farið dýpra í oxunar-afoxunarhvörf og þau tengd rafefnafræði. Gerðar eru auknar kröfur um sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í upplýsingaöflun, verklegum æfingum og skýrslugerð.
    EFNA3GH05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • efnafræði sýra og basa og jafnvægi hjá daufum og sýrum og bösum
    • efnafræði lausna, jafnalausnum, títrunum og leysnimargfeldi
    • sjálfgegni efnahvarfa, Gibbs fríorku og tengslum hennar við jafnvægisfastann
    • oxun- afoxunarhvörfum og íspennu
    • tengsl fríorku og oxun-afoxunarhvarfa
    • rafhlöðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með útreikninga og hugtök tengdum sýrum og bösum
    • lesa úr sýru-basa títrunarferlum
    • reikna leysni salta út frá leysnimargfeldi og öfugt
    • nota hugtök tengd varmafræðinni, s.s. óreiða og sjálfgeng efnahvörf
    • reikna Gibbs fríorku og túlka niðurstöður tengdar henni
    • vinna með oxun-afoxunarhálfhvörf, reikna íspennu og túlka hana
    • vinna með útreikninga og hugtök tengdum rafefnafræði
    • teikna upp hálfhlöður og útskýra rafhlöður
    • framkvæma verklegar æfingar á sjálfstæðan átt og skrifa góða einstaklingsskýrslu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • standa undir auknum kröfum um sjálfstæði í vinnubrögðum og ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nýta sér flókinn texta og gögn á markvissan hátt
    • tengja saman efnisþætti efnafræðinnar við lausn flókinna verkefna
    • tengja efnafræðina við daglegt líf, umhverfi og aðrar náttúrufræðigreinar og sjá notagildi hennar
    • meta eigin frammistöðu og annarra á gagnrýninn hátt
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.