Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444841819.23

    Einstaklingurinn og lífið
    ÞÝSK1EL05
    88
    þýska
    Eintaklingur og lífið
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn er byrjunaráfangi þar sem áhersla er lögð á að nemendur tileinki sér undirstöðuatriði tungumálsins. Nemendur fá innsýn í menningu og staðhætti á þýska menningarsvæðinu og kynnast ýmsum venjum í samskiptum og siðum. Í byrjun eru nemendur þjálfaðir í öllum málfærniþáttum; tali, hlustun, ritun og lesskilningi. Áhersla er lögð á framburð, grunnatriði málnotkunar og uppbyggingu orðaforða sem tengist nemandanum og hans nánasta umhverfi. Nemendur þjálfist í sjálfstæðum vinnubrögðum, eru hvattir til að tileinka sér árangursríka námstækni og þjálfaðir í að meta framvindu sína í námi.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að ná leikni- og hæfnimarkmiðum áfangans
    • grundvallarþáttum þýska málkerfisins
    • framburðarreglum og tónfalli tungumálsins
    • þýskumælandi löndum og fengið innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þeirra
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja talað mál um kunnugleg efni
    • fylgja einföldum fyrirmælum og skilja helstu kveðjur og kurteisisávörp
    • lesa einfalda texta sem innihalda algengan orðaforða, um umhverfi hans og áhugamál
    • taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir eða hefur áhuga á
    • beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
    • segja á einfaldan hátt frá sjálfum sér, fjölskyldu sinni, vinum og áhugamálum með því að beita orðaforða og framburði á sem réttastan hátt
    • skrifa stuttan, einfaldan texta um sjálfan sig og sitt nánasta umhverfi
    • fyllt út einföld eyðublöð, skrifað póstkort og minnismiða
    • tjá sig munnlega og skriflega á einfaldan hátt um persónulega hagi og efni sem hann þekkir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • greina einfaldar upplýsingar í mæltu máli
    • skilja meginatriði einfaldra texta og greina einfaldar upplýsingar
    • miðla upplýsingum um sjálfan sig og nánasta umhverfi sitt, s.s. fjölskyldu, vinum, áhugamálum með því að beita orðaforða á sem réttastan hátt
    • leysa úr viðfangsefnum einn eða í samstarfi við aðra
    • meta eigið vinnuframlag og kunnáttu
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunámsins og öðlast trú á eigin getu í faginu
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.