Áfanginn spannar um þrjú þúsund ár í sögu mannkyns og það segir sig sjálft að aðeins verður mögulegt að drepa á örfáum atriðum tímabilsins. Til dæmis verður fjallað um fornöldina og m.a. hvernig hún birtist í miðlum nútímans, s.s. bíómyndum, fornöldina og nútímann, þróun stafrófsins, lýðræðið í Aþenu, heimspeki Grikkja, byggingarlist Rómverja, upphaf kristninnar, myndlist og áróður, konur í fornöldinni svo eitthvað sé nefnt.
5 einingar á 2.þrepi
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
nokkrum þáttum í menningu fornaldarinnar
mikilvægi ræktunar dýra og akuryrkju
hvernig ritmál þróaðist frá Súmer til Rómar
þrælahaldi og þrældómi í menningu fornaldarinnar
þróun stórvelda fornaldarinnar og grísku borgríkjanna
þróun lýðræðis
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sjá hvernig menning fornaldarinnar birtist í menningu nútímans t.d. í kvikmyndum og byggingum
bera saman ýmsa þætti sögunnar, s.s. stöðu kvenna í fornöld og nútíma
miðla þekkingu á lýðræði og stjórnarfari í fornöld og tengja stjórnarfari í nútíma
nota fræðilegan texta á íslensku og ensku við lausn verkefna
afla upplýsinga og setja í fræðilegt samhengi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
bera saman menningarheima
rýna í texta og myndir á gagnrýninn hátt
vinna í samstarfi með ólíkar heimildir og komist að sameiginlegri niðurstöðu
beita vinnubrögðum sagnfræðinnar til þess að vinna úr heimildum og setja fram á skilmerkilegan hátt í máli og myndum
miðla fræðilegu efni í texta, máli og myndum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.