Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444844269.47

    Þættir úr menningarsögu Evrópu
    SAGA3SE05
    62
    saga
    Þættir úr menningarsögu Evrópu
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Skoðuð er menning með fjölþætt markmið í huga, myndlist, byggingarlist, bókmenntir, heimspeki og vísindi. Úrvinnsla og framsetning nemenda miði að því að miðla þekkingu, skilningi og tilfinningu fyrir tíðaranda. Nemendur lesa greinar í sagnfræðitímaritum, sögulegar skáldsögur og ævisögur.
    5 einingar í sögu á 2. þrep
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig menning Grikkja og Rómverja birtist okkur í nútímanum
    • áhrifum kirkjunnar á menningu hins vestræna heims
    • hvernig borgir hafa skapað menningarlega deiglu
    • hvernig tækni hefur haft áhrif á menninguna
    • fjölbreytilegum menningarheimum mannkyns
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • miðla fræðilegu efni í texta, máli og mynd
    • leita heimilda um fjölbreytilega menningarheima
    • nota fræðilegan texta á íslensku og ensku við lausn verkefna
    • afla upplýsinga og setja í fræðilegt samhengi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • bera saman menningarheima
    • átta sig á nýjungum í menningarsköpun og á hvaða grunni hún er byggð
    • rýna í texta og myndir á gagnrýninn hátt
    • vinna í samstarfi með ólíkar heimildir og komist að sameiginlegri niðurstöðu
    • beita vinnubrögðum sagnfræðinnar til þess að vinna úr heimildum og setja fram á skilmerkilegan hátt í máli og myndum
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.