Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444846621.3

    Lífeðlisfræði, seinni hluti
    LÍFF3LE05
    55
    líffræði
    lífeðlisfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Fjallað er um líkamsstarfsemi dýra og plantna í framhaldi af LÍFF2LE05, áhersla er á mannlíkamann og lífeðlisfræði ákveðinna líffærakerfa; meltingar-, innkirtla-, tauga-, stoð-, vöðva og æxlunarkerfi auk skynjunar og fósturþroska. Heilbrigð starfsemi er lögð til grundvallar en einnig algengustu frávik. Rannsóknarstofnanir sem tengjast viðfangsefni eru heimsóttar. Mikilvægi þekking á lífeðlisfræði í daglegu lífi, einnig eru nemendur búnir undir frekara nám í lífeðlisfræði og skyldum greinum.
    LÍFF2LE05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • næringarnámi plantna og dýra
    • uppbyggingu og virkni meltingarkerfis
    • heilbrigðum lífstíl og næringu, hlutverki vítamína, stein- og snefilefna
    • mismunandi hlutverkum boðefna
    • helstu innkirtlum og hormónum þeirra
    • eðli taugaboða og starfsemi taugakerfis
    • mismunandi skynfærum
    • stoðkerfi, vöðvum og vöðvasamdrætti
    • mismunandi frumuskiptingum
    • sáð- og eggfrumumyndun
    • æxlun manna og getnaðarvörnum
    • fósturþroska
    • algengustu frávikum heilbrigðar starfsemi, orsökum þeirra og afleiðingum
    • áhættuþáttum í líferni sem auka líkur á sjúkdómum
    • vísindalegum aðferðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja umfjöllun um helstu viðfangsefni áfangans
    • lesa líffræðilegan texta og lífeðlisfræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
    • nota upplýsingatækni við heimildaöflun og vinnu
    • beita vísindalegum aðferðum við framkvæmd verklegra æfinga
    • leysa verkefni um afmörkuð viðfangsefni
    • tjá kunnáttu sína munnlega, skriflega og fjalla um álitamál
    • fjalla um hvernig líffærakerfin starfa eðlilega auk vandamála sem upp geta komið
    • skrifa skýrslu um niðurstöður verklegra æfinga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja gróft mat á lífeðlisfræðilegar upplýsingar á gagnrýninn hátt og leggja mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu
    • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. lífeðlisfræðilegra þátta
    • taka ákvarðanir varðandi heilbrigðan lífsstíl
    • tengja niðurstöður verklegra æfinga við fræðin og draga ályktanir af þeim
    • afla sér frekari þekkingar á sviði lífeðlisfræðinnar
    • beita öguðum vinnubrögðum, taka ábyrgð á eigin námi í einstaklingsverkefnum og í samvinnu við aðra
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.