Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444847269.74

    Verkefnalíffræði
    LÍFF3VL05
    53
    líffræði
    Verkefnalíffræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Áfanginn er valáfangi fyrir nemendur á raunvísindabraut. Lögð áhersla á að nemendur samþætti þá þekkingu og færni sem þeir hafa tileinkað sér í fyrra námi, með sérstakri áherslu á líffræði. Nemandinn skrifar heimildarritgerð um áhugasvið innan líffræðinnar, les fræðigreinar í tengslum við viðfangsefni og útbýr bæði bækling og kynningu. Áhersla er á sjálfstæð vinnubrögð.
    10 einingar í líffræði
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • almennum viðfangsefnum og aðferðum líffræðinnar
    • sérhæfðum sviðum líffræðinnar eftir áhugasviði hvers nemenda
    • þeim vinnuaðferðum sem beitt er í áfanganum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa líffræðilegan texta sem tengist viðfangsefni, greina mismunandi texta úr fjölmiðlum og fræðiritum
    • lesa greinar um álitamál sem tengjast vísindasiðfræði
    • gera raunhæfa vinnu-,starfsáætlun
    • nýta sér rannsóknartæki og hugbúnað í tengslum við líffræðinám
    • samningu spurninga og viðtalstækni við rannsakendur og þar með öflun munnlegra heimilda
    • nota upplýsingatækni við heimildaöflun og vinnu
    • tjá kunnáttu sína munnlega og skriflega
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum
    • taka rökstudda afstöðu til siðfræðilegra álitamála
    • beita öguðum vinnubrögðum og taka ábyrgð á eigin námi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.