Markmið eru að nemendur þekki vel til starfsemi og byggingu (anatómíu) mannslíkamans; beinabyggingar, byggingu og starfsemi vöðvakerfis, sér í lagi rákóttra vöðva, byggingu æðakerfis, byggingu taugakerfis.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
byggingu vefja, almennt skipulag líkamans, staðsetningu líffæra
beinabyggingu líkamans
vöðvabyggingu líkamans, hver eru upptök þeirra og festur og hvernig þeir hreyfa líkamann
taugakerfinu, hvernig það er byggt upp, hvar helstu svæði heilans eru og úttaugar
byggingu æðakerfisins, byggingu hjartans, hvar helstu æðar er að finna og hvert þær liggja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa úr smásjármyndum um vefi líkamans
átta sig á vöðvum líkamans, upptökum þeirra, festu og hreyfingu
skoða beinagrindina út frá hlutverkum beinanna við hreyfingar
efla skilning á nauðsyn hreyfingar og farsæls lífstíls við líf í nútíma samfélagi
skilja hvernig blóðið streymir um líkamann og hvernig taugar stjórna líkamanum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúa sig fyrir frekara nám í heilbrigðisfræðum
lesa fræðirit um líffærafræði og heilbrigði til skilnings
fjalla á rökrænan hátt hvers vegna hreyfing er nauðsynleg
leysa úr einföldum verkefnum í líkamsþjálfun, t.d. hvernig magavöðvar eru þjálfaðir
yfirfæra þekkingu frá því að lesa um hreyfingu og nota í líkamsrækt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.