Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1444851932.66

    Ályktunartölfræði
    STÆR3ÁT05
    117
    stærðfræði
    Tölfræði, ályktunartölfræði
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Nemendur fá frekari kynningu á þeim aðferðum sem notaðar eru í ályktunartölfræði. Fjallað er um þær aðferðir sem notaðar eru til að draga ályktanir um úrtak á grundvelli upplýsinga um þýði. Fjallað verður um notkun normaldreifinga í þessum tilgangi, t-dreifingar, kíkvaðratprófanir og F-dreifingar. Einnig er fjallað um fylgni, tilgátur og prófanir. Gögn verða sett fram með sérhæfðum tölfræðiforritum s.s. Excel, Geogebra eða Gap-minder. Nemendur velja sér rannsóknarefni, þar sem þeir nýta alla lærdómsþætti áfangans til að vinna niðurstöður og gera þeim skil.
    STÆR2TL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • líkindadreifingu sem líkani við útreikning líkinda
    • grunnatriðum úrtaksfræði og meginmarkgildissetningu tölfræðinnar
    • úrtaksdreifingu við framsetningu tölfræðilegra ályktana
    • hugtökum línulegrar aðhvarfsgreiningar og bestu línu gegnum gagnapunkta í sléttum fleti
    • ýmsum tölfræðiprófum sem notuð eru til að draga ályktanir
    • framsetningu tilgáta og prófana á þeim
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota hugtökin öryggisbil, öryggismörk, skekkjumörk, öryggisstig o.s.frv.
    • setja fram tilgátu og gert á henni viðeigandi tölfræðilegt próf
    • finna fylgni, jöfnu bestu línu og gert spá ásamt því að túlka fylgnistuðla
    • nota ýmis tölfræðipróf, t.d. Z-próf og t-próf
    • nýta tölfræðileg forrit við gagnavinnslu og framsetningu, prófanir og ályktanir
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu tölfræðilegra hugmynda og viðfangsefna
    • kynna ólíkar aðferðir við framsetningu tölfræðilegra viðfangsefna
    • skilja merkingu og tengsl hugtaka í tölfræðinni og vinna með þau
    • beita skipulegum aðferðum við að lausn tölfræðilegra viðfangsefna
    • setja fram og rökstyðja niðurstöður sínar með skýrum hætti
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.