Í áfanganum læra nemendur nokkur grunnatriði myndlistar. Námið er í fimm hlutum: Formfræði, uppstilling, fjarvídd, litafræði og málun. Nemendur halda skissubók
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnþáttum í myndlist
notkun teikniáhalda og virkni þeirra
litasvið blýantsins og aðferðum til skygginga
framköllun þrívíddar með skyggingu
grunnþáttum formfræði og teikningar
blöndun grunnlita í litatóna og hugtökum þar að lútandi
myndbyggingu
eins og tveggja punkta fjarvídd
málun
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera skissur og teikningar
framkalla þrívídd með skyggingu
blanda liti í mismunandi tónum
vinna að uppbyggingu myndflatar og nýta sér markvisst hugtök á borð við: jafnvægi, spennu, þunga, hrynjandi, samhverfu, mynstur og andstæður
vinna myndverk í þrívídd og fjarvídd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta reglur og form í eigin listsköpun
vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfært í myndverk með tilliti til lita-, formfræði og myndbyggingar
byggja upp myndverk
Gæti verið í formi mats á verkefnamöppu þ.e. úrlausnar á verkefnum, frágangi og vinnubrögðum. Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram