Áfanginn er að öllu leyti verklegur og markmið hans er almenn hreyfing. Í þessum áfanga fer hreyfingin fram í formi blakþjálfunar. Lagt er upp með að nemandinn upplifi líkamlega og félagslega ánægju í gegnum þjálfunina.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
meginleikreglum í blaki
grunnatriðum í leikfræði blaksins
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leika blak sér til heilsubótar og ánægju
beita félagsfærni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
átta sig á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega og líkamlega líðan einstaklingsins