Áfanginn er verklegur með markvissri fræðslu um knattspyrnu. Nemandinn spreytir sig á fjölbreyttum aðferðum þol-, styrktar- og liðleika. Lögð er áhersla á að nemandi auki færni sína í greininni. Markviss fræðsla um forvarnagildi líkams- og heilsuræktar og hvatning til heilbrigðari lífshátta. Nemandi lærir að beita sér rétt við æfingar.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
reglum íþróttagreinarinnar
undirstöðutækni íþróttagreinarinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
geta leikið íþróttina sér til ánægju og heilsubótar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
styrkja jákvæða sjálfsmynd með þátttöku í almennri heilsurækt og leikjum sem metið er með virkni, hugarfari og mætingu nemandans
gera sér grein fyrir gildi samvinnu í leik og keppni sem metið er með samskiptahæfni nemanda
sýna öðrum virðingu við leik, nám og störf sem metið er með hegðun og framkomu nemanda
glíma við fjölbreytt verkefni sem snúa að alhliða hreyfingu, líkams- og heilsurækt
Byggist á virkni og mætingu nemandans. Einnig frammistöðu í tímum og sjálfstæði í vinnubrögðum.