Hverjar eru birtingamyndir ofbeldis? Hver eru helstu viðbrögð við ofbeldi? Hverjar eru afleiðingar fyrir gerendur og fórnarlömb? Er allt ofbeldi slæmt? Verðum við að búa við ofbeldi í okkar samfélagi?
Í áfanganum verður fjallað um ofbeldi í víðu samhengi og fjallað um siðferðisleg og félagsleg álitamál þess. Skoðaðar verða mismundandi birtingarmyndir og gerðir ofbeldis eins og; líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, andlegt ofbeldi, einelti, hryðjuverk o.s.frv. svo og möguleg viðbrögð við ofbeldi.
Spurt er hvort ofbeldi eigi sér eðlilegar skýringar, hvort að það sé eðlilegur hluti mannsandans og hvort hægt sé að útrýma því.
Mikil áhersla er lögð á sjálfstæða hugsun og vinnubrögð í áfanganum þar sem unnið er með ólíkar heimildir á fjölbreyttan hátt. Nemendur eru hvattir til að horfa með gagnrýnum augum á námsefnið jafnt sem eigin skoðanir og viðhorf en umræður um viðfangsefnið skipa stóran sess í áfanganum. Verkefnavinna miðar að því að nemendur öðlist hæfni til að nýta eigin þekkingu og reynslu við úrlausn erfiðra siðferðislegra álitamála sem gagnist þeim í áframhaldandi námi og starfi.
FÉLA2BY05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ofbeldishugtakinu og ólíkum birtingarmyndum ofbeldis
helstu hugtökum sem tengjast ofbeldi til dæmis· einelti, siðalögmál, frelsi, sjálfræði, mannhelgi , forræðishyggja
almennum félagsfræðikenningum
undirstöðuatriðum siðferðilegrar hugsunar
niðurstöðum rannsókna á ofbeldi á Íslandi og á alþjóðavísu
lestri fræðilegra texta
siðferðislegum álitamálum eins og forræðishyggju, lagalegum forvörnum, lagalegum ramma og refsingum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa um ofbeldi á fræðilegan hátt
endursegja og skýra fræðilegan texta
beita gagnrýnni hugsun til úrslausnar siðferðilegra álitaefna
rökræða siðferðisleg og félagsfræðileg vandamál
meta eigin rök og annarra í fræðilegum samræðum
skrifa fræðilegan texta um vandamál ofbeldis í samfélaginu
tengja efni áfangans við eigin reynslu og veruleika
takast á við erfiðar fræðilegar aðstæður á markvissan hátt
skilja rétt fórnarlamba og gerenda
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
geta tekið þátt í umræðum fræðileg málefni tengt ofbeldi
skilja og þekkja rétt og ábyrgð samfélagsins
geta beitt fræðilegri hugsun á markvissan hátt á flestum sviðum lífsins
skrifa um ofbeldi á fræðilegan hátt
skilja lagalegan rétt aðstandenda, geranda og fórnarlamba ofbeldis
vega og meta ólíka hagsmuni til þess að komast að upplýstri og sanngjarnri niðurstöðu
geta tileinkað sér nýja þekkingu á markvissan hátt
geta skrifað um erfið samfélagsleg og fræðileg vandamál á skýran hátt
skilja siðferðilegar skyldur fólks
beita félagsfræðilegum og heimspekilegum hugmyndum til þess að leysa úr siðferðislegum vandamálum
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.