Í áfanganum vinna nemendur lokaverkefni sem byggir á fræðilegri þekkingu. Áfanginn gefur möguleika á þverfaglegu samstarfi. Gert ráð fyrir að nemandinn velji efni tengt hestabraut. Nemandinn fær kennslu í helstu aðferðum rannsókna og þjálfun í þeim fræðilegu vinnubrögðum sem tíðkast við vinnslu og frágang verkefna, þ.m.t. heimildavinnu. Krafist er vitsmunalegrar og verklegrar leikni til að vinna verkefnið og ætlast er til að nemandinn öðlist hæfni til að nýta fyrri þekkingu og skilning við úrvinnslu. Mikil áhersla er lögð á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð, að nemandinn læri að setja fram skoðanir sínar á faglegan hátt og taki ábyrgð á eigin námi. Nemendur skila fullunnu lokaverkefni og kynna viðfangsefni sín á málstofu.
HEST3ÞG03, REIM3ÞG05, ÍSLE3HR05
Einungis nemendur sem komnir eru að námslokum fá að sitja áfangann
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tilteknu viðfangsefni sem hann hefur valið sér
mikilvægi undirbúnings-, tilrauna- og rannsóknarvinnu til öflunar og úrvinnslu upplýsinga
forsendum hugmyndavinnu, framkvæmd og framvindu að fullunnu verki
mikilvægi þess að koma vinnu sinni á framfæri og rýna í eigin verk og annarra
reglum um höfundarrétt og hugmyndum um rit- eða myndstuld
helstu aðferðum við heimildaleit og nauðsyn þess að vanda meðferð heimilda
helstu reglum um heimildanotkun rannsóknaraðferðum og þau kerfi sem eru notuð
byggingu heimilda- og rannsóknarritgerða og/eða verkefna
helstu aðferðum við framsetningu og úrvinnslu gagna í tölvu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
afla fjölbreyttra heimilda, t.d. skráðra heimilda úr bókum, tímaritum og af netinu eða frumheimilda, ef svo ber undir
vinna með og leggja mat á upplýsingar úr heimildum á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt
fylgja viðurkenndum reglum við gerð og frágang verkefnis
skrifa skýran og greinargóðan texta
tjá sig, í ræðu og riti, á gagnrýninn og skapandi hátt um sérhæft efni
temja sér frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun
útfæra eigin hugmynd að verkefni tengdu eigin sérgrein
temja sér sjálfstæð og fagleg vinnubrögð
setja fram vinnuáætlun og greina verkþætti
að endurmeta framkvæmd verksins á öllu vinnuferlinu
kynna eigin verk og taka þátt í sýningu
rýna í eigin verk og annarra með uppbyggilegri gagnrýni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera raunhæfa verkáætlun og framfylgja henni
setja fram rökstudda rannsóknarspurningu eða efnisyfirlýsingu
skrifa lokaritgerð eða gera lokaverkefni samkvæmt viðurkenndum aðferðum
geta nýtt sér upplýsingatækni og aðra miðla við hugmyndavinnu
vera fær um að taka sjálfstæða ákvörðun varðandi verkefnaval
tileinka sér vinnuferlið frá hugmynd að fullgerðu verki
fylgja eftir skipulögðu vinnuferli miðað við tímaþátt, endurmat og framkvæmd verksins
sýna frumkvæði, frumleika og skapandi hugsun
koma vinnu sinni á framfæri í formi kynningar eða sýningar
rýna í eigin verk og rökstyðja niðurstöður bæði munnlega og skriflega á uppbyggilegan hátt
Leiðsagnarmat þar sem vinna nemanda í áfanganum er metin með reglubundnum hætti. Til grundvallar matinu eru einkum verkáætlun nemanda, sjálfstæði í vinnubrögðum, efnistök, mál og stíll, meðferð heimilda og frágangur verkefnis.