Í áfanganum er farið í sögu reiðmennsku. Þjálfun hesta og þjálfunarlífeðlisfræði. Safnandi og liðkandi fimiæfingar og eðlismunur á þeim. Hvenær og hversvegna ákveðnar fimiæfingar er notaðar. Farið betur í opinn sniðgang og æfinguna að bakka. Framhaldsgangtegundaþjálfun. Skeiðþjálfun. Íslenskar stangir og notkun þeirra. Keppni á íslenskum hestum. Félagssamtök og stofnanir.
HEST2KF03, REIM2KF05, FÓHE2HU03
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
sögu reiðmennsku.
þjálfun hesta og þjálfunarlífeðlisfræði.
skipulagi félagskerfis hestamennskunnar.
muninum á safnandi og liðkandi fimiæfingum.
opnum sniðgangi og æfingunni að bakka.
framhaldsgangtegundaþjálfun.
skeiðþjálfun.
íslenskum stöngum og notkun þeirra.
keppni á íslenskum hestum.
framhaldsþjálfun með tilliti til réttrar líkamsbeitingar hests
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
tjá sig í ræðu og riti um fagið.
afla sér upplýsinga á víðtækan hátt um hestamennsku og nýta sér það til framdráttar.
leggja rétt mat á einfaldar aðstæður og taka sjálfstæðar ákvarðanir varðandi verklag.
nálgast fag sitt af ábyrgð og virðingu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
miðla þekkingu sinni m.a. í ræðu og riti um sögu reiðmennsku.
þjálfun hesta og þjálfunarlífeðlisfræði.
skipulagi félagskerfis hestamennskunnar.
muninum á safnandi og liðkandi fimiæfingum.
opnum sniðgangi og æfingunni að bakka.
framhaldsgangtegundaþjálfun.
skeiðþjálfun.
íslenskum stöngum og notkun þeirra.
keppni á íslenskum hestum.
skipulag félagskerfis hestamennskunnar
Námsmat er fjölbreytt og felst meðal annars í ritgerðum, verkefnum, prófum, jafningjamati og sjálfsmati.