Í þessum áfanga er stefnt að því að nemendur fái trausta þekkingu á tiltekinni íþróttagrein og eru búnir undir þjálfunar- og leiðbeinendastörf hjá íþróttahreyfingunni, í frjálsri félagastarfsemi eða í frístundastarfi. Efnið er breytilegt eftir önnum eftir aðstæðum hverju sinni.
Vísað er til áfangalýsingar úr áfangasafni skóla og hjá viðkomandi sérsambandi innan ÍSÍ um nánari útfærslu. Áfanginn samsvarar sérgreinahluta þjálfara 1 í fræðslukerfi ÍSÍ. Dæmi um viðfangsefni: , júdó, karate, glíma, golf, jóga, sund, fimleikar, íþróttir fatlaðra og styrktarþjálfun .
Undanfari: ÍÞRG2BL02 og ÍÞRF2ÞB05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
allri grunntækni í íþróttagreininni
mismun á þjálfun barna og fullorðinna
leikreglum og/eða helstu æfingum greinarinnar
undirbúningi og skipulagi sem þarf til að iðka íþróttina
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
undirbúa æfingar fyrir börn og fullorðna í greininni
helstu tækniatriðum greinarinnar
kennslufræði greinarinnar
dómgæslu greinarinnar ef við á
leikfræði og eða tækni greinarinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
undirbúning þjálfunar greinarinnar
gerð tímaseðla
dæma leiki hjá yngstu iðkendum ef við á
nýta sér upplýsingatækni við skipulag æfinga og þjálfun