Nemendur dýpka þekkingu sína á grunnsniðum og saumtækni. Gera vinnulýsingu eftir eigin hönnun og þjálfast í að vinna eftir eigin vinnulýsingu.Saumtækniprufur eru gerðar og sett er saman einföld og fóðruð flík. Nemendur setja hugmyndir sínar á blað í riti og teikningum.
Vettvangsferðir og sýning á verkefnum eru hluti af áfanganum.
FATA1SH05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
saumtækni
saum og fóðri
vinnu með teygjanleg efni (jersey)
flóknari frágang á saumum
verklýsingum og flötum teikningum
tískuteikningu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
vinna flóknari útfærslur á sniðum
gera eigin vinnulýsingar
fara eftir vinnulýsingum
áætla efnikaup
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna sjálfstætt við snið og sniðútfærslur
sauma fóðraða flík
nota og gera vinnulýsingar
Mæting og virkni. Metnar eru vinnulýsingar og notkun á þeim. Útfærsla á sniðum metin. Heimapróf. Hópverkefni. Mat á umfangi, frágangi og vinnubrögð við saum á eigin flík.