Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1453733927.36

    Franska 5
    FRAN2SV05
    20
    franska
    Áhersla á sjálfstæð vinnubrögð
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð og munnlega færni. Áfram er unnið með fjölbreytt efni um land og þjóð. Lögð er áhersla á fjölbreytt efnistök og munnlega og skriflega beitingu málsins. Unnið er að hluta í þemavinnu, þar sem fjallað er á ýmsa vegu um menn og málefni. Að hluta er efni valið af nemendum þannig að það standi þeim nær og sé í samræmi við áhugasvið þeirra. Auk þess er fjallað um málefni líðandi stundar í frönskumælandi löndum.
    FRAN2AS05 (FRA2A05)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • nauðsynlegum orðaforða og málnotkun, munnlegri og skriflegri.
    • flóknari þáttum málkerfisins.
    • helstu reglum og hefðum um framsetningu á rituðu máli, s.s. formlegri og óformlegri framsetningu eða mismunandi textagerðum.
    • menningu og samfélagi.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skilja markmál sem talað er á eðlilegum hraða og ná megininntaki í lengri frásögn, kvikmyndum, sjónvarps- og hljóðefni.
    • nota markmálið í samskiptum í kennslustundum og um efni áfangans.
    • tjá sig skýrt og óhikað um afmörkuð málefni sem hann hefur kynnt sér og nota viðeigandi orðaforða og málsnið.
    • lesa texta af margvíslegum toga, nota mismunandi lestrar- og úrvinnsluaðferðir og að vinna sjálfstætt úr efni styttri og lengri texta.
    • túlka munnlega og skriflega texta sem lesnir hafa verið, nota fjölbreyttan orðaforða og lýsa eigin upplifun og skoðunum á efninu.
    • flytja stutt erindi um undirbúið efni og svara um það spurningum og athugasemdum samnemenda og/eða kennara.
    • afla sér hagnýtra upplýsinga með hjálp upplýsingatækni, orðabóka og annars sem að gagni má koma.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skilja daglegt mál án þess að efnið hafi verið undirbúið sérstaklega og geta dregið út megininntak flóknari texta með skriflegri samantekt.
    • tileinka sér texta, sem hlustað er á, er lesinn eða er í myndefni, átta sig á samhengi, viðhorfum og meginefni, geta tjáð sig um efnið sem metið er með rökræðum, fyrirlestrum og jafningjamati.
    • lesa á milli línanna og hafa nokkurn skilning á dýpri merkingu, tvíræðni, háði og myndmáli, s.s. í textum eða kvikmyndum sem metið er með ritunarverkefnum og kynningum.
    • geta notað markmálið á persónulegan og skapandi hátt með því t.d. að semja og eftir atvikum flytja texta frá eigin brjósti um efni að eigin vali sem metið er með leiðsagnarmati kennara.
    Námsmat fer fram á fjölbreyttan hátt í öllum færniþáttum.