Í þessum grunnáfanga í tölvunotkun er farið yfir notkun á töflureiknum, kynningarforritinu prezi, hugarkortum og ýmislegt annað tengt almennri tölvunotkun. Áhersla verður á að efni áfangans sé fjölbreytt og komi nemendum að notum í námi og starfi sínu.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
forritum sem þarf að nota í námi og starfi
þeim möguleikum sem tölvukunnátta getur veitt
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
setja upp gögn á skýran hátt í töflureikni
reikna með gögn í töflureikni
búa til heimasíður
nota ritvinnsluforrit
klippa myndbönd á Ipad
búa til kynningar með prezi
búa til hugarkort
læra sjálf á ný forrit
vinna saman í hóp með aðstoð netsins
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum
bera ábyrgð á eigin námsframvindu
vinna í hópi með aðstoð tölva og netsins
Leiðsagnarmat. Fjölbreytt verkefni metin jafnt og þétt yfir önnina. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram. Engin skrifleg lokapróf.