Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455028713.63

    Enska á öðru námsári máladeilda
    ENSK3HB12
    129
    enska
    Bókmenntir og fræðilegir textar í hugvísindum
    Samþykkt af skóla
    3
    12
    Unnið verður áfram með þá færni sem nemendur hafa tileinkað sér í fyrri áföngum og lögð áhersla á alla færniþætti í náminu. Lögð er sérstök áhersla á bókmenntir frá 16. til 19. öld með það fyrir augum að nemendur geti tekist á við lestur texta frá þeim tíma. Einnig er lögð áhersla að nemendur verði læsir á fræðilega texta í hugvísindum til undirbúnings fyrir háskólanám, auki orðaforða sinn, bæti málvitund sína, lesi fjölbreyttar bókmenntir og þjálfist í ritun og munnlegri færni.
    A.m.k. 9 feiningar á 2. (og 3.) þrepi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
    • þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi og starfi
    • mismunandi afstöðu og túlkun bókmennta og dýpri merkingu texta
    • hugtökum í bókmenntafræði
    • mismunandi stefnum og straumum í bókmenntum
    • rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa sér til fræðslu og/eða ánægju texta sem gera miklar kröfur til lesandans, ýmist hvað varðar orðaforða og uppbyggingu eða myndmál og stílbrögð í klassískum bókmenntaverkum
    • greina sögulegt, félagslegt, menningarlegt eða pólitískt samhengi í bókmenntatextum
    • leggja gagnrýnið mat á texta, listrænt gildi hans og mismunandi stílbrögð höfunda
    • átta sig á málfarsmun, mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar
    • nýta sér fyrirlestra, umræður og rökræður um efni menningarlegs eðlis
    • átta sig á mismunandi málsniði og stíl í töluðu máli og undirliggjandi merkingu, viðhorfum og tilgangi þess sem talar
    • tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
    • skilja sér til gagns þegar fjallað er um flókið efni
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • beita málinu af lipurð og kunnáttu til að geta tekið fullan þátt í umræðum og rökræðum þar sem fjallað er um persónuleg, menningarleg og félagsleg umfjöllunarefni í bókmenntum
    • flytja vel uppbyggða frásögn, kynningu eða greinargerð, draga fram aðalatriði og rökstyðja mál sitt nákvæmlega með dæmum og bregðast við fyrirspurnum
    • tjá tilfinningar, nota hugarflug og beita stílbrögðum, t.d. myndmáli og líkingamáli
    • skrifa texta með röksemdafærslu þar sem fram koma rök með og á móti og þau eru vegin og metin
    • túlka og greina krefjandi bókmenntaverk
    • nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
    Símat, áfangapróf, miðsvetrarpróf og lokapróf.