Fjallað um helstu aðferðir sem notaðar eru við málmsuðu og málmskurð. Farið yfir flokka og staðla helstu málmsuðuvíra og gasefna og kynntir eiginleikar þeirra. Kennd er suða á smíðastáli með pinnasuðu, mag-suðu og logsuðu. Kenndur er logskurður og skurður með plasma. Farið yfir öryggisatriði varðandi málmsuðu og málmskurð. Kennd verður notkun ýmissa verkfæra sem notuð eru við járnsmíðavinnu. Námskeiðið er að mestu leyti verkleg þjálfun.
Almennar forkröfur búfræðináms.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu aðferðum sem notaðar eru við málmsuðu og málmskurð.
flokkum og stöðlum helstu málmsuðuvíra og gasefna og eiginleikum þeirra.
mismunandi aðferðum við suðu á smíðastáli, pinnasuðu, mag-suðu og logsuðu.
logskurði og skurði með plasma.
öryggisatriðum varðandi málmsuðu og málmskurð.
helstu verkfærum sem notuð eru við járnsmíðavinnu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita helstu aðferðum sem notaðar eru við málmsuðu og málmskurð.
skoða flokka og staðla helstu málmsuðuvíra og gasefna og eiginleika þeirra.
beita mismunandi aðferðum við suðu á smíðastáli, pinnasuðu, mag-suðu og logsuðu.
beita aðferðum við logskurð og skurð með plasma.
fylgja öryggisatriðum varðandi málmsuðu og málmskurð.
beita helstu verkfærum sem notuð eru við járnsmíðavinnu.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
velja viðeigandi aðferðir til málmsuðu og málmskurðar hverju sinni ...sem er metið með... rökstuðningi og verklagi.
gera sér grein fyrir hvaða málmsuðuvírar og gasefni henta hverju sinni út frá eiginleikum þeirra ...sem er metið með... rökstuðningi og verklagi.
leysa af hendi málmsmíðaverkefni með viðeigandi verkfærum og aðferðum sem taka mið af málmsuðu og málmskurði með öryggi að leiðarljósi ...sem er metið með... rökstuðningi og verklagi.