Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455468951.23

    Íþróttir á öðru námsári: Íþróttir og heilsurækt
    ÍÞRÓ1AB02
    140
    íþróttir
    Almennar íþróttir B
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Íþróttir og heilsurækt þar sem byggt er ofan á grunnþættina. Aukin áhersla er lögð á sjálfstæð vinnubrögð nemenda og að nemendur skilji mikilvægi mismunandi ákefðar í íþróttum og heilsurækt. Nemendum er kynnt hvernig þeir geti sett sér raunhæf markmið í íþróttum og heilsurækt. Einnig er áhersla lögð á hreyfingu utandyra við mismunandi aðstæður. Að auki er áhersla lögð á líkamsbeitingu og líkamsvitund. Einnig lögð áhersla á mikilvægi forvarnargildis íþrótta og heilsuræktar. Byggt er ofan á þekkingu nemenda í gömlum íslenskum og erlendum dönsum sem og hópdönsum. Kennsla fer fram innandyra sem utan. Að hausti býðst nemendum að taka valgreinar í fjórar vikur, breytilegar íþróttagreinar eftir árum.
    ÍÞRÓ1AA02
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi fjölbreyttra þjálfunaraðferða allra grunnþáttanna og sjálfstæðra vinnubragða
    • mikilvægi þess að efla bæði líkamlegan og andlegan styrk með fjölbreyttri og markvissri hreyfingu með mismunandi ákefð
    • mikilvægi útivistar og þeim möguleikum sem bjóðast til hreyfingar utandyra
    • hvernig best sé að setja sér raunhæf markmið til heilsueflingar
    • samvinnu og tillitssemi
    • forvarnargildi líkams- og heilsuræktar
    • gömlum íslenskum og erlendum dönsum, samkvæmis- og hópdönsum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • þjálfa grunnþættina á markvissan og fjölbreyttan hátt ásamt því að öðlast leikni í að vinna sjálfstætt
    • finna leiðir til þess að efla bæði líkamlegan og andlegan styrk við mismunandi ákefð
    • búa sig undir útivist við mismunandi aðstæður með breytilegri ákefð
    • setja sér raunhæf markmið til heilsueflingar
    • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu og líkamsvitund
    • taka þátt í leikjum og æfingum sem efla jákvæða upplifun og viðhorf til heilsuræktar
    • dansa gamla íslenska og erlenda dansa, samkvæmis- og hópdansa
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að eigin íþróttaiðkun og velja heilsurækt við hæfi
    • skipuleggja og meta mismunandi aðferðir til upphitunar, þol-, styrktar-, snerpu- og liðleikaþjálfunar. Einnig að meta mismunandi ákefð við hreyfingu
    • stunda útivist við mismunandi aðstæður og breytilega ákefð
    • setja sér raunhæf markmið til heilsueflingar
    • leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega- og félagslega þætti
    • geta unnið með öðrum nemendum s.s. í hópverkefnum, boltaleikjum og dansi
    Verkleg próf eru tekin bæði um jól og að vori. Að vori er einnig gefin námseinkunn fyrir allan veturinn sem samanstendur af mætingu og virkni í tímum.