Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455543726.03

    Grunnaðgerðir stærðfræðinnar
    STÆR1GS05(ST)
    54
    stærðfræði
    grunnaðgerðir
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    ST
    Áhersla er lögð á hugtaka- og talnaskilning ásamt þjálfun í grunnaðgerðum stærðfræðinnar þ.e. samlagningu, frádrátt, margföldun og deilingu. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér. Unnið verður sérstaklega með tímahugtök og tímatal. Áhersla er lögð á að nýta upplýsingatækni í stærðfræði.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnaðgerðum stærðfræðinnar
    • grunnhugtökum stærðfræðinnar
    • möguleikum ýmissa hjálpar- og snjalltækja
    • klukkunni
    • tímatali
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt
    • nota hjálpar- og snjalltæki við lausn viðfangsefna
    • nota klukku og tímatal
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér grunnaðgerðir stærðfræðinnar í daglegu lífi
    • nýta sér hjálpar- og snjalltæki við daglegar athafnir
    • nýta sér klukku og tímatal í daglegu lífi og starfi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.