Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455545127.32

    Brot, tölfræði í daglegu lífi og mælingar
    STÆR1BM05(ST)
    55
    stærðfræði
    Brot og mælingar
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    ST
    Áhersla lögð á að dýpka skilning á almennum brotum, tugabrotum, peningum, prósentum og tölfræði í daglegu lífi og starfi. Einnig verður unnið með mælingar þ.e. þyngdar, lengdar, flatarmál, ummál og rúmmál. Áhersla er lögð á að nýta upplýsingatækni í stærðfræði. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • grunnaðgerðum stærðfræðinnar
    • grunnhugtökum stærðfræðinnar
    • almennum brotum
    • tugabrotum
    • peningum og gildi þeirra
    • prósentum
    • tölfræði
    • mælingum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt
    • nota almenn brot og tugabrot við útreikninga
    • nota peninga
    • nota prósentureikning
    • nota mælingar og tölfræði
    • nota viðeigandi hugtök í daglegu máli
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta sér grunnaðgerðir stærðfræðinnar í daglegu lífi
    • nýta sér peninga í daglegu lífi
    Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.