Áhersla verður á fjármálalæsi í víðu samhengi. Farið verður yfir helstu persónuleg útgjöld ungs fólks og mikilvægi þess að hafa yfirsýn yfir eigin fjármál. Áhersla lögð á að nýta upplýsingatækni í stærðfræði. Stefnt er að því að viðhalda og byggja ofan á þann grunn sem nemandi hefur þegar tileinkað sér.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
grunnaðgerðum stærðfræðinnar
grunnhugtökum stærðfræðinnar
nauðsyn þess að hafa yfirsýn yfir eigin fjármál
nauðsyn þess að sýna ábyrgð í fjármálum
nauðsyn þess að forgangsraða í fjármálum
ýmsum forritum sem hjálpa til við yfirsýn eigin fjármála
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
beita viðeigandi aðgerðum og nota þær á réttan hátt
skipuleggja eigin fjármál
nota forrit og önnur hjálpartæki
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér grunnaðgerðir stærðfræðinnar í daglegu lífi
hafa yfirsýn yfir eigin fjármál
nota viðeigandi hjálpartæki
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.