Áhersla á að nemendur kynnist helstu póst og samskiptanetum skólans. Einnig helstu aðgerðum ritvinnslu til að vinna með texta og gera hann læsilegri. Farið verður yfir helstu þætti um ábyrga netnotkun og siðferði á netinu. Auk þess verður farið yfir höfundarétt efnis á netinu og hvort við getum notað efnið í námi og starfi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu póst- og samskiptanetum
hugbúnaði/forritum og öðrum búnaði við upplýsingleit
helstu aðgerðum til framsetningar og miðlunar á texta
miðlun þekkingar á fjölbreyttan hátt
höfundarétti og notkun heimilda
reglum um ábyrga netnotkun
mati á áreiðanleika upplýsinga á netinu
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
markvissri notkun póst- og samskiptaneta
nota hugbúnað við upplýsingaleit
móta og setja fram texta á ýmsan máta og átta sig á læsileika hans
nýta netið til samskipta á öruggan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vinna í póst- og samskiptanetum
meta, varðveita og miðla upplýsingum og þekkingu á skipulagðan hátt
vinna að mótun texta á ýmsan máta og stuðla þannig að læsileika hans
virði höfundarétt í vinnu með gögn af ýmsum toga
beita sjálfstæðum vinnubrögðum
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.