Áfanginn byggist á að nemendur tengi saman vefsíðugerð annars vegar og myndvinnslu hins vegar. Nemendur setja upp einfalda vefsíðu og kynnast helstu verkfærum til þess og einnig undirstöðu atriðum í ljósmyndun og myndvinnslu. Áhersla verður lögð á að nemendur vinni ljósmyndaefni að eigin vali inn á vefsíður sem þeir hafa sett upp.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skipulagningu og hönnun vefsíðna
undirstöðuatriðum í ljósmyndun og myndvinnslu
helstu verkfærum sem notuð eru við almenna myndvinnslu
höfundarétti mynda
verkfærum sem eru notuð til að búa til vefsíður
viðmótshönnun, uppbyggingu og skipulagi vefsíðna
notagildi stílsniða í hönnun vefs
tengimöguleikum vefsíðna við gagnagrunnskerfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nota myndvinnslu fyrir vef
nýta sér verkfæri til myndvinnslu
skipuleggja vef
hanna vefsíður
vinna með ólík myndsnið, litakerfi og upplausn mynda
vista og ganga frá myndum fyrir vefsíðu og prentun
lagfæra og breyta myndum
skipuleggja vefsíður til að koma efni til skila á áhrifaríkan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
meðhöndla myndefni fyrir vef
setja saman og lagfæra myndir í myndvinnsluforritum
koma efni og myndum á framfæri á vefsíðu
viðhalda og breyta eldri vefsíðum og koma nýju efni inn
gera einfalda hugmynd að vel útfærðri vefsíðu
hanna viðmót á vefsíðum
setja upp og skipuleggja vefsíður
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.