Viðfangsefni áfangans verða byggð bæði á efnum og eðli hluta. Tímarnir eru verklegir og ein tilraun gerð í hverjum tíma. Nemendur kynnast því hvernig tilraunir eru framkvæmdar og þjálfast í vinnubrögðum sem tengjast framkvæmd þeirra. Verkefnin verða tengd umhverfi nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og kynna þeim mikilvægi þekkingar á eðlis- og efnafræði í daglegu lífi.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvar og hvenær eðlis- og efnafræði kemur við sögu í daglegu lífi
grundvallarvinnubrögðum við tilraunir í efna- og eðlisfræði
efnum og eðli efna sem nýtt eru við tilraunir
nota viðeigandi tæki og áhöld við einfaldar tilraunir
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
grundvallarvinnubrögðum við tilraunir í efna- og eðlisfræði
nota viðeigandi tæki og áhöld við einfaldar tilraunir
setja upp og framkvæma verklegar æfingar/tilraunir
vinna úr niðurstöðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
tengja verklegar æfingar/tilraunir við daglegt líf og umhverfi
nýta sér eðlis- og efnafræði í hinu daglega lífi
koma niðurstöðum tilrauna á framfæri á einfaldan hátt
draga ályktanir og útskýra út frá niðurstöðum verklegra æfinga
umgangast efni og eðli þeirra á ábyrgan hátt
Námsmat er útfært í kennsluáætlun í samræmi við skólanámskrá.